Um okkur
Sveifla er íslenskt hestavörumerki þar sem gæði, ending og velferð hrossa eru í forgrunni. Markmið okkar er að bjóða upp á endingargóðar og vandaðar vörur sem styðja bæði hest og knapa á öllum stigum.
Að baki Sveiflu stendur Júlíus Guðni Kuhne Sveinsson frá Lýtingsstöðum, sem hefur alla tíð verið umkringdur hestum og hestatengdri ferðaþjónustu. Með sterkum grunni í íslenskri hefð og reynslu úr daglegum störfum með hrossum, sá Júlíus þörfina fyrir vörur sem uppfylla háar kröfur um bæði notagildi og þægindi fyrir hrossin.
Við hjá Sveiflu leggjum mikla áherslu á virkt samtal við knapa, hvort sem um er að ræða atvinnumenn í þjálfun og tamningum eða áhugafólk í hestamennsku. Með því tryggjum við að vörurnar þróist í takt við raunverulegar þarfir og nýjustu strauma í greininni.